Lífsins ólgusjór

Þrándur málar sterk verk sem lýsa lífsins ólgusjó og átökum bæði við hafið og líka innri og ytri baráttu.
Þrándur hefur unun af að skapa eitthvað nýtt ásamt því að komast í snertingu við náttúruna og stundar nú strandveiðar á sumrin og er atvinnubílstjóri á veturna. Þess á milli er hann að mála með olíu og vatnslit.

“Sjórinn er eins og lífið. Djúpur og dularfullur og fullur af leyndarmálum. Ólgar og iðar af lífi sem við sjáum sjaldnast. Þegar við dýfum niður færi er aldrei öruggt hvaða fiskur bítur á öngulinn. Mikil verðmæti leynast í djúpum hafsins en sjórinn getur líka verið miskunnarlaus og fyrirgefur ekki alltaf mistök.”

Ég hef alla tíð dregist að sjónum og þeim djúpa náttúrukrafti sem í honum býr. Nú hef ég verið nokkur sumur á strandveiðum fyrir vestan. Til að styrkja andann og tengsl mín við sjóinn og sjómennskuna fór ég að mála myndir sem fönguðu ímynd mína og upplifun – hafið og bátana sem á honum sigla.

Áherslur

Hugmyndir

Sjórinn er ólíkur frá einu augnabliki til þess næsta. Eina stundina er hann rennisléttur með mjúkar bárur. Augnabliki síðar koma hárfínar gárur eða hafið skiptir litum. Stundum eykst vindurinn með deginum og þá stækka öldurnar og verða stundum óþægilega krappar.

Hver bátur á sjónum er einstakur. Báturinn þarf að vera útbúinn til að geta tekist á við hafið í öllum sínum myndum. Eyfirðingur EA 91 er Seigur 870 hraðfiskibátur með Volvo Penta D4 vél ásamt tilheyrandi hældrifi með skrúfum, stýri og sjálfstýringu, siglingatæki, AIS kerfi, talstöð, björgunarbát, flotgalla og fleira og fleira. 

Bátarnir sem ég mála eru líka einstakir. Ekki endilega málaðir eftir raunverulegri fyrirmynd, heldur frekar ímynd mín um bát sem flýtur á sjónum og fer sína eigin leið. Báturinn er að nokkru tákn míns eigin sjálfs en að nokkru tákn þjóðarskútunnar eða jafnvel mannkynsins í heild.

Sjórinn sem ég mála er oft úfinn og grár og dimmur og lítt árennilegur, en báturinn er traustur og siglir af öryggi á öldutoppunum. Litirnir í sjónum eru margbreytilegir og ráðast af drungalegum himninum. Landið er fjarri en stundum má greina fjöll og eyjar.

Himinn og haf renna gjarnan saman og sjóndeildarhringurinn óljós og ójafn. Hafið verður ekki sigrað af mannlegum mætti og við mannfólkið munum áfram sækja verðmæti í sjóinn.

Verkin fjalla þannig í raun um átök. Barátta báta við öldur. Samt ekki síst innri átök mín. Einnig eru önnur og stærri átök. Barátta himins og hafs. Barátta ljóss og myrkurs. Barátta sannleika við lygar. Barátta góðs og ills.

Sýningar og umsagnir

Hafðu samband